Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,18% og er 6.436 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 1.890 milljónir króna.

Straumur-Burðarás hefur hækkað um 0,57% og Bakkavör Group hefur hækkað um 0,32%.

Marel hefur lækkað um 1,27%, Actavis Group hefur hækkað um 0,92%, Mosaic Fashions hefur lækkað um 0,61%, Glitnir hefur lækkað um 0,43% og Kaupþing banki hefur lækkað 0,35%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,1% og er 123,1 stig.