Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,3% og er 4.147 stig við hádegi. Gengi krónu hefur veikst um 0,9% og er 160 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Bakkavör Group hefur hækkað mest eða um 1,8%, líkt og sjá má á meðfylgjandi töflu. Sé litið sé sjö daga um öxl stendur gengi félagsins í stað. Hinsvegar hefur félagið lækkað um 22% sé litið aftur um mánuð.

Danska vísitalan OMXC hefur hækkað um 0,1% og sænska vísitalan hefur hækkað um 1,8%. Norska vísitalan OBX hefur lækkað  um  0,8%.