Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,37% og er 6.743 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 1.196 milljónum króna.

FL Group hefur hækkað um 0,36% og er eina félagið sem hækkað hefur.

Kaupþing hefur lækkað um 0,67%, Teymi hefur lækkað um 0,66%, 365 hefur lækkað um 0,63% og Actavis og Eimskip hafa lækkað um 0,59%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,91% og er 126,1 stig.