Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,5% og er 5.070 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3,2 milljörðum króna. Veltan á skuldabréfamarkaði er hinsvegar 20 milljarðar króna.

Danska vísitalan hefur hækkað um 1%, norska vísitalan hefur hækkað um 2,3% og sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 1%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Eik banki [ FO-EIK ] hefur hækkað um 1,4% og Teymi [ TEYMI ] hefur hækkað um 1%.

365 [ 365 ] hefur lækkað um 4,9%, Marel [ MARL ] hefur lækkað um 3,5%, FL Group [ FL ]  hefur lækkað um 2,5% - en félagið birti ársuppgjör eftir lok markaðar í gær, Straumur [ STRB ] hefur lækkað um 1,6% og Exista [ EXISTA ] hefur lækkað um 1,4%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,6% og er 128,6 stig.