Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,52% og er 7.907 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 1,9 milljarði króna.

Eimskip hefur hækkað um 0,25% og Atorka Group hefur hækkað um 0,2%.

Atlantic Petroleum hefur lækkað um 3,48%, Exista hefur lækkað um 1,43%, Föroya banki hefur lækkað um 1,36%, FL Group hefur lækkað um 1,19% og Bakkavör Group hefur lækkað um 0,93%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,37% og er 120,4 stig.