Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,53% og er 8.087 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3,7 milljörðum króna.

Eimskip hefur hækkað um 0,64% og Mosaic Fashions hefur hækkað um 0,3%.

Teymi hefur lækkað um 2,03%, Icelandic Group hefur lækkað um 1,48%, FL Group hefur lækkað um 1,19%, Bakkavör Group hefur lækkað um 1,11% og 365 hefur lækkað um 1,03%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,34% og er 113,5 stig.