Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,6% og er 4.924 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 1,9 milljarða króna.

Atorka [ ATOR ]  er eina félagið sem er grænt og hefur hækkað um 0,5%.

Bakkavör Group [ BAKK ] hefur lækkað um 1,5%, Landsbankinn [ LAIS ] hefur lækkað um 0,9%, Eimskip [ HFEIM ] sömuleiðis, Teymi [ TEYMI ]  hefur lækkað um 0,8% og Össur [ OSSR ] hefur lækkað um 0,4%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,1% og er 128,7 stig.