Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,61% og er 7.785 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Metnis. Veltan nemur 3,6 milljöðrum króna.

Atlantic Petroleum hefur hækkað um 0,29% og er eina félagið sem hefur hækkað.

Mosaic Fashions hefur lækkað um 1,47%, Bakkavör Group hefur lækkað um 1,01%, Kaupþing hefur lækkað um 0,92%, Össur hefur lækkað um 0,78% og Straumur-Burðarás hefur lækkað um 0,72%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,39% og er 118,5 stig við hádegi.