Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,7% og er 4.252 stig við hádegi. Gengi krónu hefur styrkst um 0,5% og er 151,3 stig.
Veltaá hlutabréfamarkaði nemur 463 milljónum króna. Velta á skuldabréfamarkaði nemur 5,7 milljörðum króna.
Einungis eitt félag hefur hækkað það sem af er degi, Century Aluminium [ CENX ]. Bakkavör [ BAKK ] leiðir lækkunina, líkt og sjá má á töflunni hér til hliðar.
Danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 0,5%, norska vísitalan OBX hefur lækkað um 0,6% og sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 0,8%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.