Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,70% og er 8.492 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 3,6 milljörðum króna.

Föreya banki hefur hækkað um 0,96%, Icelandair Group hefur hækkað um 0,35%, Atorka Group hefur hækkað um 0,32% og Marel hefur hækkað um 0,1%.

Eik banki hefur lækkað um 2,04%, FL Group hefur lækkað um 1,43%, Teymi hefur lækkað um 1,24%, Kaupþing hefur lækkað um 1,16% og Glitnir hefur lækkað um 1,02%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,12% og er 116,2 stig.