Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,8% og er 5.196 stig við hádegi. Gengi krónu hefur styrkst um 0,1% og er 151,3 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Danska vísitalan OMXC stendur í stað, norska vísitalan OBX hefur hækkað um 2,9%, sænska vísitalan hefur hækkað um 0,3%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Century Aluminium [ CENX ] hefur hækkað um 2,6% og Atlantic Airways [ FO-ATLA ] hefur lækkað um 0,9%.

Flaga Group [ FLAGA ]  hefur lækkað um 10,7% en gengi félagsins hefur verið hækkað mikið síðustu daga, Spron[ SPRON ] hefur lækkað um 1,9%, Kaupþing [ KAUP ] hefur lækkað um 1,2% og FL Group [ FL ] sem og Glitnir [ GLB ] hafa lækkað um 0,9%.