Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,88% og er 6.453 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 2.191 milljónum króna.

Össur hefur hækkað um 1,21%, Atlantic Petroleum hefur hækkað um 0,86%, Avion Group hefur hækkað um 0,65% og Dagsbrún hefur hækkað um 0,2%.

FL Group hefur lækkað um 1,74%, Kaupþing banki hefur lækkað um 1,57%, Glitnir hefur lækkað um 0,93%, Marel hefur lækkað um 0,62% og Actavis Group hefur lækkað um 0,43%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,18% og er 118,5 stig við hádegi. Gengi krónu hefur styrkst um 5% frá 22. september.