Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,92% og er 7.530 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 7.670 milljónum króna.

Flaga Group hefur hækkað um 1,7% og Atorka Group hefur hækkað um 0,98%.

Eimskip hefur lækkað um 2,62%, Mosaic Fashion hefur lækkað um 1,96%, FL Group hefur lækkað um 1,88%, Straumur-Burðarás hefur lækkað um 1,87% og Bakkavör Group hefur lækkað um 1,84%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,38% og er 118,9 stig.