Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,2% og er 4.629 stig við hádegi. Gengi krónu hefur veikst um 0,6% ig er 153,9 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Veltan nemur 1,7 milljörðum króna.

Erlendar hlutabréfavísitölur eru flestar rauðar það sem af er degi. Danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 1,3%, norska vísitalan OBX hefur lækkað um 2,6% og sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 2,1%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.