Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,3% og er 4.984 stig við hádegi. Gengi krónu hefur veikst um 0,9% og er 155 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Velta á hlutabréfamarkaði nemur 5,6 milljörðum króna en á skuldabréfamarkaði er hún 32,8 milljarðar króna.

Century Aluminium [ CENX ] hefur hækkað um 2,2% og Össur [ OSSR ] hefur hækkað um 0,3%.

Föroya banki [ FO-BANK ] hefur lækkað um 3,6%, Icelandic Group [ IG ] hefur lækkað um 3,2%, Icelandair Group [ ICEAIR ]hefur lækkað um 3%, Eimskip [ HFEIM ] hefur lækkað um 2,2% og Kaupþing hefur lækkað um 1,6%.