Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,7% og er 5.311 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 2,2 milljörðum króna.

Breska vísitalan FTSE100 hefur lækkað um 0,5%, danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 0,3% og sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 0,9%. Engu að síður hefur norska vísitalan hækkað um 0,8%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Ekkert félag hefur hækkað það sem af er degi.

Spron hefur lækkað um 4,2%, Atlantic Petroleum hefur lækkað um 3,4%, Kaupþing hefur lækkað um 2,5%, Atlantic Airways hefur lækkað um 2,1% og Teymi hefur lækkað um 1,8%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,2% og er 126 stig.