Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,8% og er 5.139 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 2,4 milljörðum króna.

Danska vísitalan hefur lækkað um 0,3%, norska vísitalan hefur lækkað um 1,1% og sænska vísitalan hefur lækkað um 0,2%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Teymi [ TEYMI ] er eina félagið sem er grænt og hefur hækkað um 0,9%.

FL Group [ FL ] hefur lækkað um 3,9%, Föroya banki [ FO-BANK ] hefur lækkað um 3,7%, Glitnir [ GLB ] hefur lækkað um 2,4%, Spron [ SPRON ] hefur lækkað um 2,3%, og Exista [ EXISTA ] hefur lækkað um 2,2%.

Gengi krónu stendur í stað og er 127 stig.