Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,81% og er 6.179 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 2.069 milljónum króna.

Flaga Group hefur hækkað um 0,36% og er eina félagið sem hækkað hefur.

Össur hefur lækkað um 2,59%, Marel hefur lækkað um 2,56%, Landsbankinn hefur lækkað um 2,35%, Glitnir hefur lækkað um 2,17% og Actavis Group hefur lækkað um 1,85%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,12%.