Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 2,5% síðan í morgun og stendur nú í 4.901 stigi.

Aðeins eitt félag, Føroya Banki [ FO-BANK ] hefur hækkað í morgun og hefur félagið hækkað um 4,5%.

Icelandic Group [ IG ] heldur áfram að lækka og hefur nú lækkað um 7,7% í morgun. Í gær lækkaði félagið um rúmlega 16%.

Þá hefur FL Group [ FL ] lækkað um 4,2% og Exista [ EXISTA ] um 3,5%.

Velta með hlutabréf er 3,1 milljarður en þar ef eru um einn milljarður í Straum [ STRB ].