Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 3% og er 4.857 stig við hádegi. Gengi krónu hefur styrkst um 1% og er 154,4 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Veltan nemur 2,3 milljörðum króna.

Danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 0,7%, norska vísitalan OBX hefur lækkað um 0,6% og sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 1%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Century Aluminium [ CENX ] hefur hækkað um 1,2%, Össur [ OSSR ] hefur hækkað um 0,2% og Atlantic Petroleum [ FO-ATLA ] hefur hækkað um 0,1%.

Exista [ EXISTA ]  hefur lækkað um 3,8%, Kaupþing [ KAUP ]  hefur lækkað um 3,5%, Spron [ SPRON ]  hefur lækkað um 3,4%, Straumur [ STRB ] hefur lækkað um 3,2% og Landsbankinn [ LAIS ] hefur lækkað um 3%.