Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,3% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 634 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan stóð í stað við lok markaða í gær, annan daginn í röð. Í morgun stóð hún í stað við opnun markaða en lækkaði nú rétt fyrir hádegi.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Alfesca leiðir lækkanir dagsins en félagið hefur lækkað um 21% í viðskiptum upp á 150 þúsund krónur.

Velta með hlutabréf er um 3 milljónir krónur en þar af eru um 500 þúsund krónur með bréf í Bakkavör.