Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,62% og 5.936 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur um 2.374 milljónum króna.

Stærstu einstöku viðskiptin eru utanþingsviðskipti með bréf FL Group fyrir 929 milljónir króna á genginu 17,9 krónur á hlut. Viðskiptin eru ekki verðmyndandi. Gengi FL Group er 18,2 krónur á hlut við hádegi.

FL Group hefur hækkað um 1,68%, Mosaic Fashions hefur hækkað um 1,16%, Bakkavör Group hefur hækkað um 0,93%, Kaupþing banki hefur hækkað um 0,88% og Landsbankinn um 0,82%.

Össur hefur lækkað um 1,19%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,13% og er 123,3 stig við hádegi.