Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,2% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:00 í 377 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,8% á föstudag en um 42,2% í síðustu viku eftir að viðskipti með bréf í Existu og Straum voru heimiluð á ný.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 484 milljónir króna en þar af eru um 320,5 milljónir króna með bréf í Exista.

Rétt fyrir klukkan ellefu í morgun fóru fram viðskipti með rétt rúma 6,4 milljón hluti í félaginu á genginu 0,05 fyrir rétt rúmar 320 milljónir króna.

Þá er velta fyrir rúmar 76,5 milljónir króna með bréf í Marel og tæpar 56 milljónir króna með bréf í Straum.