Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] heldur áfram að lækka og hefur nú lækkað um 0,7% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 12:10 í 4.275 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er 1,4 milljarðar. Þar af eru tæplega 590 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 190 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og um 130 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst í morgun um 0,2% en gengisvísitalan er nú 158,7 stig.