Það sem af er degi hefur úrvalsvísitalan lækkað um 0,09% og stendur nú í 6.585,78 stigum.

Sex félög hafa hækkað í Kauphöllinni í dag, níu hafa lækkað og 10 standa í stað.

Mest hefur Atorka hækkað eða um 0,82% en Dagsbrún og Kaupþing banki hafa hækkað um 0.75%.

Alfesca hefur lækkað mest í dag eða um 2,6%, FL Group um 1,48% og
Landsbankinn hefur lækkað um 1,38%.