Í frétt utanríkisráðuneytisins kemur fram að 25 manns sóttu um forstjóristarfs Varnarmálastofu. Eftirtaldir sóttu um embættið:

  • Axel Kristinsson, sagnfræðingur, til heimilis í Reykjavík
  • Birna Þórarinsdóttir, stjórnmálafræðingur, til heimilis í Bandaríkjunum
  • Bjarni Vestmann, sendifulltrúi, til heimilis í Reykjavík
  • Björn Þórir Sigurðsson, aðstoðarforstjóri, til heimilis í Hafnarfirði
  • Eiríkur Kinchin, fjarskiptafræðingur, til heimilis í Garðabæ
  • Ellisif Tinna Víðisdóttir, aðstoðarlögreglustjóri, til heimilis í Reykjavík
  • Erlingur Bjarnason, framkvæmdarstjóri, til heimilis í Reykjanesbæ
  • Friðrik Jónsson, sendiráðunautur, til heimilis á Akranesi
  • Guðmundur Bogason, framkvæmdarstjóri, til heimilis í Danmörku
  • Guðmundur Hallgrímsson, þjónustufulltrúi, til heimilis í Reykjavík
  • Guðmundur R. Björnsson, tæknifræðingur, til heimilis í Hafnarfirði
  • Guðrún Erlingsdóttir, forstjóri, til heimilis í Reykjavík
  • Hákon Einarsson, innkaupastjóri, til heimilis í Reykjavík
  • Hildur Björk Pálsdóttir, vaktstjóri, til heimilis í Reykjavík
  • Hreiðar Eiríksson, lögfræðingur, til heimilis á Akureyri
  • Jens Jóhannsson, sölumaður, til heimilis í Reykjavík
  • Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, til heimilis í Reykjavík
  • Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdarstjóri, til heimilis á Bretlandi
  • Matthías G. Pálsson, sendiráðunautur, til heimilis í Bandaríkjunum
  • Sigurður Sigurðsson, tæknifræðingur, til heimilis í Garðabæ
  • Sigurjón Valdimarsson, lektor, til heimilis í Kópavogi
  • Silja Bára Ómarsdóttir, forstöðumaður, til heimilis í Reykjavík
  • Snorri Ingimarsson, rafmagnsverkfræðingur, til heimilis í Reykjavík
  • Stefán Pálsson, sagnfræðingur, til heimilis í Reykjavík
  • Ögmundur Snorrason, verkfræðingur, til heimilis í Reykjanesbæ

Utanríkisráðuneytið nýtur aðstoðar Capacent Ráðninga við mat á umsækjendum og töku viðtala.

Varnarmálastofa tekur til starfa 1.júní næstkomandi, og því verður ferlinu hraðað eftir föngum.