Endurminningar Georg W. Bush koma út í dag. Breska blaðið Guardian komst yfir eintak af bókinni og greinir frá innihaldi hennar á vef sínum.

Í bókinni, Decision Points, sem eru 497 síður að lengd skýrir Bush sína hlið í mörgum af sínum umdeildustu ákvörðunum. Í bókinni viðurkennir Bush að mistök hafi verið gerð í Írak en segir að rétt hafi verið að ráðast inn í landið.