Flugferðir til Lundúna eru 16,6% allra flugferða frá Íslandi, en mest er flogið til Lundúna, Kaupmannahafnar og Oslóar. Á eftir Osló kemur Amsterdam, því næst New York og svo París. Þetta kemur fram í frétt Túrista.is um framboð og tíðni  áætlunarflugferða frá Íslandi.

Á sama tíma í fyrra gat hinn almenni neytandi valið um níu mismunandi flugfélög en nú eru þau orðin þrettán talsins. Samhliða þessari aukningu hefur áætlunarflugferðum fjölgað um 33% milli ára og borgir sem hægt er að ferðast til eru orðnar 44 miðað við 34 árið á undan.