Áður auglýstum aðalfundi Kögunar hf. sem fram átti að fara miðvikudaginn 22. febrúar n.k. kl. 12:00 á Hótel Loftleiðum hefur verið frestað vegna formgalla í fyrri boðun að því er segir í nýrri tilkynningu til Kauphallarinnar.

Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 28. mars nk. Staðsetning og tími verður auglýst síðar.