Aðalfundur Geysis Green Energy fer ekki fram fyrr en eftir páska að sögn Ásgeirs Margeirssonar, forstjóra félagsins. Þá verður að venju kjörin ný stjórn. Búast má við breytingum í samræmi við breytt eignarhald.
Hluthafahópur Geysis Green Energy breyttist í febrúar þegar FL Group seldi allan hlut sinn í félaginu, 43,1%, til Atorku Group, Glitnis og VGK Invest. Eftir það varð Atorka stærsti hluthafinn með um 44% hlut.
Glacier Renewable Energy Fund, orkusjóður í eigu Glitnis, á um 42%, VGK Invest um 11%, Bar Holding 2% og Reykjanesbær 1%.
Í núverandi stjórn eru þrír fulltrúar FL Group. Það eru þeir Hannes Smárason, stjórnarformaður, Bernhard Bogason og Einar Þorsteinsson. Gera má ráð fyrir því að þeir hverfi úr stjórn í ljósi þess að FL Group á ekki lengur hlut í félaginu.