Gengi bréfa í hollenska bankanum ABN Amro hækkaði um 9.5% í viðskiptum í gær í kjölfar fregna um að breski bankinn Barclays hyggist leggja fram kauptilboð í bankann.

Fregnir af áhuga birtust í breskum blöðum um helgina en stjórnendur Barclays staðfestu viðræður í dag.