Hollenski bankinn ABN Amro staðfesti í gær að honum hefði borist nýtt yfirtökutilboð frá RBS-hópnum upp á 71,1 milljarð evra. Næsta skref hjá stjórn bankans er að ræða við fulltrúa bankanna þriggja, en hópurinn samanstendur af Royal Bank of Scotland, Fortis og Santander.
Í hinu nýja tilboði RBS-hópsins er gert ráð fyrir því að hlutfall peninga verði 93% í stað 70% áður. Tilboð keppinautarins Barclays er hins vegar um 63 milljarðar evra og greitt að öllum hluta í nýjum hlutabréfum í breska bankanum.