Actavis hefur keypt 11% hlut í tyrkneska samheitalyfjafyrirtækinu Fako fyrir 1,25 milljarða króna (20,4 milljónir Bandaríkjadala) og er það nú að fullu í eigu Actavis, segir í tilkynningu.

Actavis keypti 89% hlut í Fako í desember árið 2003 fyrir 63 milljónir dala, en auk þesss samþykkti félagið að setja allt að 15 milljónir dala í rekstur Fako til endurfjármögnunar, segir í tilkynningunni.

Actavis keypti átta erlend fyritæki á síðasta ári, þar á meðal bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Amide fyrir 500 milljónir dala og samheitalyfjaeiningu bandaríska félagins Alpharma fyrir 810 milljónir dala. Actavis er nú fjórða stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims.

Fako, sem er fimmta stærsta samheitalyfjafyrirtæki í Tyrklandi, sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu samheitalyfja. Fyrirtækið þróar og framleiðir hráefni til lyfjagerðar. Starfsmenn þess eru um 1.200. Félagið, sem er með höfuðstöðvar í Istanbúl, rekur tíu söluskrifstofur í Tyrklandi.