Lyfjafyrirtækin Actavis og hið pólska Polpharma eru tvö eftir í baráttunni um yfirtöku á Polfa Warszawa. Haft er eftir forstjóra Actavis, Claudio Albrecht, á heimasíðu fyrirtækisins að hann sé viss um að Actavis sé besti möguleikinn, ekki eingöngu fyrir pólska starfsmenn Polfa heldur einnig fyrir Pólland. Polfa er eitt af stærstu lyfjafyrirtækjum Póllands og ef af kaupunum verður kemur Pólland til að verða þriðji stærsti markaður Actavis á eftir Bandaríkjunum og Bretlandi.