Lyfjaframleiðandinn Actavis hyggst fjölga starfsmönnum sínum á Íslandi en félagið auglýsti átta störf um síðustu helgi, þar af eru fimm störf viðbót við starfandi deildir.

Að sögn Hjördísar Árnadóttur, talsmanns Actavis, er hér um að ræða lítilsháttar breytingar hjá félaginu en heldur sé verið að efla starfsemina á Íslandi. Hjá Actavis starfa á sjötta hundrað starfsmanna á Íslandi.