Actavis hefur tilkynnt að fyrirtækið muni loka dreifingarmiðstöð og vöruhúsi í Maryland í Bandaríkjunum í apríl á komandi ári og um leið úthýsa dreifingu til United Parcel Service - UPS. Um 80 starfsmenn munu missa vinnuna vegna þessa.
Í frétt á vef Baltimore Business Journal kemur fram að breytingarnar séu hluti af hagræðingaraðgerðum til að hámarka framleiðni. Dreifingin á lyfjum verður í höndum sérstakrar deildar UPS sem sérhæfir sig í dreifingu til sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana, og er staðsett í Louisville.
Fyrr á þessu ári tilkynnti Actavis áætlun um að loka 240 manna verksmiðju í Baltimore á næstu tveimur árum og flytja starfsemina til Norður-Karolínu. Með þessum aðgerðum er Actavis að hagræða í lyfjaframleiðslu í Bandaríkjunum í kjölfar kaupa á Alpharma Inc. á liðnu ári.