Alþjóðlega samheitalyfjafyrirtækið Actavis Group skilaði 6,3 milljarða króna hagnaði á árinu 2005 og 2,8 milljarða hagnaði á fjórða ársfjórðungi, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Tekjur samstæðunnar námu 45,2 milljörðum króna á árinu og hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (?EBITDA?) nam 11,6 milljörðum króna. Árið er það besta í sögu félagsins. Hefur framlegð félagsins á fjórða ársfjórðungi og fyrir árið í heild sinni aldrei verið hærri, segir í tilkynningunni.

Tekjur á árinu 2005 jukust um 27,8%, og nam innri vöxtur 4,3%, og námu 45.2 milljarðar króna.

Sala eigin vörumerkja jókst um 22,5% og nam 294,1 milljón evra (án Alpharma), sala til þriðja aðila dróst saman um 9,1% og nam 149,7 milljónum og er í takt við væntingar eftir markaðssetningu stórra lyfja í upphafi árs 2004, segir í tilkynningunni.

Í ársuppgjörinu má í fyrsta sinn sjá tekjur frá starfsemi Actavis í Norður-Ameríku, sem samanstendur í dag af fyrirtækjunum Amide Pharmaceuticals og samheitalyfjastarfsemi fyrirtækisins Alpharma Inc. í Norður-Ameríku. Rekstur Amide kemur inn í samstæðuna frá 1. júlí og Alpharma frá 19. desember 2005.