Actavis hefur hækkað um 12,8% í dag frá því að tilboð Novators í félagið barst í morgun. Markaðurinn er nú kominn framyfir tilboð Novators í verðleggingu sinni á félaginu. Gengi Actavis er nú komið upp í 88,20 krónur á hlut en tilboð Novators hljóðar upp á 85,23 krónur á hlut sem var 9% yfir lokagengi Actavis í Kauphöllinni í gær.