Actavis lagði fram beiðni í gær (9. ágúst) til Fjármálaeftirlits Króatíu um samþykki fyrir birtingu yfirtökutilboðs í allt hlutafé króatíska lyfjafyrirtækisins PLIVA í Zagreb, segir í tilkynningu Kauphallar Íslands.

Birting yfirtökutilboðsins er háð samþykki Fjármálaeftirlits Króatíu.