Actavis hefur í gær og í dag keypt hluti í Pliva í gegnum kauphöllina í London og í Króatíu, samanlagt um 9,0%. Alls hefur Actavis því yfirráð yfir með beinum eða óbeinum hætti 20,4% af útistandandi hlutafé félagsins.

Samkvæmt samningi króatíska fjárfestingarfélagið Quaestus sem félagið greindi frá í apríl sl. á félagið 0,7% af hlutafé PLIVA, þannig að heildareignarhlutur félagsins í dag nemur 9,7%. Auk þess hefur félagið gert kaupréttarsamning við þriðja aðila um kaup á 10,7% af útistandandi hlutafé félagsins.