Í kjölfar tilkynningar Barr Pharmaceuticals um að hækka tilboð sitt til hluthafa PLIVA, hefur stjórn Actavis ákveðið að hækka ekki tilboð sitt í félagið að svo stöddu, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Stjórn félagsins telur að núverandi tilboð þess til hluthafa PLIVA að upphæð 2,5 milljarða bandaríkjadala endurspegli vel virði félagsins. Í samræmi við framangreint mun Actavis hafa samband við fjármálaeftirlit Króatíu í því skyni að losa þá ábyrgð sem félagið hefur lagt fram vegna tilboðs síns í hlutafé PLIVA, segir í tilkynningunni.

Bein og óbein eignaraðild Actavis nemur 20,8% af heildarhlutafé í PLIVA og mun félagið fylgjast með framvindu söluferlisins og áskilur sér rétt til að ganga aftur inn í það ferli.

?Við teljum að samruni Actavis og PLIVA sé áhugaverður en í samræmi við stefnu okkar um að greiða ekki of hátt verð fyrir þau félög sem við kaupum, þá teljum við að erfitt sé að réttlæta hærra verð fyrir félagið," segir Róbert Wessman, forstjóri Actavis.

"Við teljum að vaxtartækifæri félagsins liggi víða og munum við halda áfram að efla góða undirliggjandi starfsemi félagsins. Afkoma Actavis og vöxtur hefur verið sérlega góður og samhliða sókn okkar inn á nýja markaði, munum við halda áfram að leita áhugaverðra tækifæra til að skipa félaginu í hóp stærstu samheitalyfjafyrirtækja heims," sagði Róbert.