Stjórn Actavis Group ákvað þann 1. desember 2006 að nýta heimild sína til hækkunar hlutafjár til að mæta skuldbindingum félagsins vegna kaupréttarsamninga við starfsmenn, segir í tilkynningu.
Stjórn félagsins ákvað að hækka hlutafé félagsins um krónur 14.763.976 að nafnverði. Heildarhlutafé félagsins eftir framangreinda hækkun verður alls krónur 4.114.435.093 að nafnverði þar af eru krónur 3.369.453.093 (A-hlutir) skráðir í Kauphöll Íslands.