Nafni Actavis Pharmaceuticals Iceland ehf. hefur verið breytt í Teva Pharma Iceland ehf. Breyting á nafni hefur ekki í för með sér neinar breytingar á vörumerkjum fyrirtækisins sem íslenskir neytendur þekkja vel. Önnur starfsemi á Íslandi í eigu Teva, m.a. Medis ehf., starfar áfram undir eigin nafni og er sem fyrr í eigu Teva Pharmaceutical Industries Ltd.

Teva er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar bæði í New Jerseey í Bandaríkjunum sem og í Ísrael, en félagið er sagt í tilkynningu hafa vaxið gífurlega síðastliðna áratugi, bæði með sjálfbærum innri vexti og með kaupum á öðrum fyrirtækjum. Teva keypti Actavis Generics, samheitalyfjahluta Allergan, árið 2016 en Teva hefur þróað og framleitt lyf í ríflega heila öld.

„Vegna sterkrar stöðu Actavis hér á landi varð Actavis eftir sem nafn fyrirtækisins á Íslandi; fyrirtæki sem er þekkt fyrir sölu á samheita- og lausasölulyfjum. Nú er þó kominn góður tími til að samræma nafn fyrirtækisins á Íslandi við móðurfélagið á sambærilegan hátt og unnið hefur verið að á öðrum mörkuðum Teva um allan heim undanfarin ár“, segir Þórdís Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Teva Pharma Iceland ehf.

„Til viðbótar við gríðarlega fjölbreytt vöruúrval Teva á samheita- og lausasölulyfjum, hefur Teva einnig náð góðum árangri í rannsóknum og þróun á frumlyfjum og hafa nokkur slík lyf komið á markað á síðustu árum, þar á meðal á Íslandi. Hér mætti t.d. nefna lyf okkar við mígreni og MS sjúkdómi.“

Tekið skal fram að nöfn á vörum fyrirtækisins sem núna eru á markaði munu ekki breytast og nafn Actavis mun halda áfram sem sterkt vörumerki á vörum Teva.

120 starfsmenn hjá Teva enn á Íslandi

Til viðbótar við sölu- og markaðseiningu Teva á Íslandi, Teva Pharma Iceland ehf., eru hér á landi einnig staðsettar alþjóðlegar stoðeiningar fyrir fyrirtækið, m.a. á sviði gæðamála, auk höfuðstöðva Medis sem er einnig dótturfélag Teva og selur lyf og lyfjahugvit til þriðja aðila um allan heim. Hjá öllum einingum Teva á Íslandi starfa alls um 120 manns.

Teva Pharmaceutical Industries Ltd (NYSE og TASE: TEVA) hefur þróað og framleitt lyf, þá bæði samheita- og sérlyfjum með yfir 3.500 vörur í nærri öllum sjúkdómsflokkum. Um 200 milljónir sjúklinga um allan heim taka lyf Teva á hverjum degi og þessu fólki þjónar ein stærsta og flóknasta framleiðslukeðja lyfjaiðnaðarins segir félagið m.a. í tilkynningu sinni..