Actavis hefur keypt verksmiðju indverska lyfjafyrirtækisins Grandix Pharmaceuticals, sem sérhæfir sig í framleiðslu og þróun samheitalyfja, en kaupverðið var ekki gefið upp, segir í fréttatilkynningu.
Einnig hefur Actavis opnað nýja þróunareiningu á Indlandi sem mun sérhæfa sig í þróun virkra lyfjaefna.
Actavis hefur nú eignast sína fyrstu lyfjaverksmiðju á Indlandi sem stjórnendur félagsins telja að geti þjónað mikilvægu hlutverki í harðnandi samkeppni á alþjóðlegum mörkuðum og er liður í því markmiði samstæðunnar að auka enn frekar framlegð sína á næstu árum, segir í tilkynningunni.
Með kaupunum getur Actavis nýtt þá miklu sérþekkingu á lyfjaiðnaði sem er á Indlandi og lágan framleiðslukostnað, sem mun styðja við vöxt og samkeppnishæfi félagsins í Evrópu og Bandaríkjunum. Verksmiðjan mun meðal annars þjóna því hlutverki að framleiða mörg af eldri lyfjum samstæðunnar þar sem verð hafa lækkað mikið og styrkir þannig samkeppnishæfi félagsins í sölu þessarra lyfja.
Actavis hefur nú aukið umsvif sín á Indlandi umtalsvert en á síðasta ári keypti félagið Lotus Laboratories, sem sérhæfir sig í frásogsprófunum (bio-equivalence studies). Rekstur Lotus hefur gengið sérlega vel og alls hafa verið gerðar yfir 160 frásogsprófanir hjá félaginu á árinu 2006 og ört vaxandi hluti slíkra prófana samstæðunnar eru nú framkvæmdar hjá Lotus.
Þá hefur Actavis einnig opnað nýja 1000 fermetra þróunareiningu á Indlandi, sem mun þróa virk lyfjefni fyrir hluta af þeim lyfjum sem markaðssett verða á næstu árum í Bandaríkjunum og Evrópu. Markmið félagsins er að þróa framleiðsluferli fyrir 10-15 virk lyfjaefni á ári og er þróun nú þegar hafin á 10 þeirra og um 50 starfsmenn verið ráðnir til að sinna þróun þeirra.
Grandix var stofnað árið 1996 og er með höfuðstöðvar í Alathur, sem er um 40 kílómetra frá Chennai á Suður Indlandi. Í verksmiðju Grandix starfa um 100 manns og sérhæfir félagið sig í framleiðslu og þróun samheitalyfja. Verksmiðjan framleiðir fjölda samheitalyfja í töfluformi og er afkastageta hennar um 700 milljónir taflna á ári og hefur Actavis áform um að auka hana í 4 milljarða taflna á næstu 18 mánuðum, auk þess að styrkja þróunar og skráningareiningu verksmiðjunnar enn frekar. Nú þegar hefur ein lyfjaumsókn (ANDA filing) verið send til bandarískra lyfjayfirvalda (FDA) úr verksmiðju Grandix. Verksmiðjan mun í framtíðinni starfa undir nafni Actavis og Grandix mun halda áfam annarri starfsemi sinni í kjölfar kaupanna, segir í tilkynningunni.
Róbert Wessman, forstjóri Actavis, segir að kaupin á verksmiðju Grandix séu mikilvægt skref í vexti Actavis og að tækifæri skapist til að lækka enn frekar framleiðslukostnað samstæðunnar og auka þannig samkeppnishæfni hennar á næstu árum. Þá sé einkar áhugavert að félagið hafi nú aukið umsvif sín á Indlandi umtalsvert og er nú komið með öfluga framleiðslueiningu, frásogsfyrirtæki, þróunareiningu á virkum lyfjaefni og innkaupaskrifstofu.