Actavis plc, móðurfélag Actavis á Íslandi, tilkynnti í dag að kaupum á írska lyfjafyrirtækinu Warner Chilcott sé nú lokið.  Viðskiptin eru metin á um 8,5 milljarða bandaríkjadali, en greitt er fyrir hlutabréf með hlutabréfum. Sameining fyrirtækjanna gerir Actavis að leiðandi alhliða lyfjafyrirtæki á alþjóðavísu og er gert ráð fyrir um 11 milljarða dala sameiginlegri veltu á þessu ári.

Í tilkynningu frá Actavis segir að kaupin styrkistöðu félagsins fyrst og fremst á sviði sérlyfja og geri Actavis að þriðja stærsta sérlyfjafyrirtæki í Bandaríkjunum með um 3 milljarða dala ársveltu á því sviði. Með kaupunum mun Actavis tvöfalda vöruúrval sitt þegar kemur að sérlyfjum, með áherslu á heilsu kvenna, þvagfæralækningar, meltingar- og húðsjúkdóma.

Actavis og Warner Chilcott hafa nú verið sameinuð í nýju fyrirtæki sem hefur verið stofnsett á Írlandi og tekið upp nafnið Actavis plc og verður félagið áfram skráð í kauphöllina í New York.