Samheitalyfjaframleiðandinn Actavis, sem er í eigu Novator, hefur sett vinsæla línu húðvara á markað í Rúmeníu. Decubal-línan samanstendur af 17 mismunandi tegunda krema og sápa sem er einkum ætlað að vinna gegn þurri húð. Webwire greinir frá þessu í dag.

Vörulínan hefur verið í þróun hjá Actavis um nokkurt skeið, undir handleiðslu norrænna húðsérfræðinga. Decubal inniheldur hvorki rotvarnar- né ilmefni og hentar öllum aldurshópum.

Línan hefur þegar verið sett á markað á Íslandi og á Norðurlöndunum og hefur notið mikilla vinsælla um árabil. Einnig í öðrum Evrópulöndum, til dæmis Eystrasaltslöndunum, Búlgaríu og Portúgal.

Actavis hefur um 11.000 starfsmenn á sínum snærum í 40 löndum.