Actavis hefur selt 15% hlut sinn í Velafarm aftur til fyrirtækisins fyrir 1,7 milljónir evra. Að auki hefur Actavis gert samning við Velafarm vegna dreifingar á vörum Actavis innan Serbíu. Þessi 15% hlutur var keyptur í september 2003 fyrir sömu upphæð. Nýi dreifingarsamningurinn felur ekki í sér neina stórvægilega breytingu á starfsemi Actavis í Serbiu. Þetta kom fram í tilkynningu í Kauphöllinni.