Actavis hefur selt lyfjaverksmiðju sína í Lier í Noregi og hefur gert fimm ára framleiðslusamning við sænska framleiðslufyrirtækið Inpac, segir í tilkynningu.

Salan mun ekki hafa nein fjárhagsleg áhrif á árinu 2006. Að teknu tilliti til kostnaðar sem tengist sölunni er greitt fyrir hana um tíu milljónir evra (900 milljónir króna), sem er í samræmi við bókfært virði eignarinnar í efnahagsreikningi.

Sala verksmiðjunnar er í samræmi við markmið félagsins um samþættingu framleiðslueininga og að styrkja framlegðarstig samstæðunnar á næstu árum.

Actavis eignaðist verksmiðjuna í desember 2005 við kaupin á lyfjafyrirtækinu Alpharma og hefur hún aðallega framleitt töflur, krem og smyrsli, einkum til sölu á Norðurlöndunum, Evrópu og Mið-Austurlöndum.

Norska tryggingarfélagið Storebrand kaupir verksmiðjuna og leigir síðan áfram til Inpac, sem mun að fullu taka yfir starfsemi hennar.

Lyfjaverksmiðja Actavis í Vennesla í Noregi, sem framleiðir m.a. plástra undir merkjum Norgesplaster, tengist ekki þessum breytingum og engin áhrif eru á sölustarfsemi félagsins á markaðnum.