Actavis Group hefur undirritað bindandi viljayfirlýsingu við ástralska frumlyfjafyrirtækið QRxPharma Limited um markaðssetningu á frumlyfinu MoxDuo IR í Bandaríkjunum.

Viljayfirlýsingin hafði jákvæð áhrif á gengi hlutabréfa QRxPharma sem hækkaði um 13,45%.

Undirbúningur markaðssetningar hefst þegar í stað, að því er fram kemur í tilkynningu.

Reiknað er með að lyfið komi á bandaríska markaðinn á þriðja ársfjórðungi næsta árs.

Actavis hefur einkaleyfi til að markaðssetja og selja MoxDuo á bandaríska markaðinum.

Actavis ráðgerir að MoxDuo verði aðal verkjalyf félagsins í Bandaríkjunum en á þeim markaði hefur Actavis náð umtalsverðum árangri á undanförnum árum með lyfinu Kadian. Talið er að markaðurinn fyrir lyf við bráðaverkjum í Bandaríkjunum velti um 2,5 milljörðum dala á ári.