Actavis hefur gert óformlegt tilboð í allt hlutafé samheitalyfjafyrirtækisins PLIVA, segir í fréttatilkynningu.

Sagt var frá áhuga Actavis á félaginu fyrr í morgun á vefsíðu Viðskiptablaðsins.

Í fréttatilkynningu til Kauphallarinnar segir að Actavis Group hefur sent stjórnendum króatíska semheitalyfjafyrirtækisins PLIVA, óformlegt tilboð um kaup á öllu hlutafé félagsins, sem skráð er í kauphöllinni í Króatíu og London.

Tilboðið, sem er með fyrirvara um áreiðanleikakönnun var sent PLIVA þann 13.mars. Það kveður á um að greitt verði HRK 570 fyrir hvern hlut í félaginu, sem er um 35% yfirverð miðað við meðalgengi hlutabréfa þess síðastliðna 3 mánuði.

Markaðsvirði félagsins, að teknu tilliti til yfirverðs er um 1,6 milljarðar dollara (um 110 milljarðar króna).


Robert Wessman, forstjóri Actavis, segir að samruni PLIVA við Actavis myndi styrkja stöðu samstæðunnar á lykilmörkuðum í Evrópu og í Bandaríkjunum. Sameiginlegt félag yrði það þriðja stærsta í heimi, með öflugt sölunet, vöruframboð og þróunarstarf.

Actavis er nú sjötta stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi. Robert Wessman tekur fram að viðræður væru ekki formlega hafnar og alls óvíst hvort að af kaupunum verði eða hvort formlegt yfirtökutilboð verði gert til hluthafa félagsins.

Pliva, gaf út tilkynningu í gær um að fyrirtækið væri ekki til sölu og að stefnan væri að verða áfram króatískt fyrirtæki.

PLIVA er alþjóðlegt samheitalyfjafyrirtæki, sem stofnað var árið 1921 og sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu samheitalyfja, eftir að hafa selt frá sér frumlyfjastarfsemi sína á síðasta ári. Hjá félaginu starfa rúmlega 6000 manns og er það skráð á hlutabréfamarkað í Króatíu og London.

Heildartekjur vegna ársins 2005 námu 1,2 milljörðum dollara (um 770 milljónir eru tekjur af sölu samheitalyfja) og EBITDA framlegð nam 319 milljónum dollara.

Stjórnendur PLIVA vænta þess að EBITDA fyrir árið 2006 verði um 180 milljónir dollara. Félagið hefur góða markaðsstöðu í Króatiu, Póllandi og Rússlandi, auk þess að selja lyf til Þýskalands, Ítalíu, Spánar og Bandaríkjanna."


Actavis keypti tvö stór samheitalyfjafyrirtæki á síðasta ári ? bandaríska lyfjafyrirtækið Amide fyrir 500 milljónir dollara og samheitalyfjaeiningu bandaríska lyfjafyrirtækisins Alpharma fyrir 810 milljónir dollar.